Nú ferðin var ágæt, ferðalagið ívið auðveldara en þetta í febrúar þegar við komum hingað út en það tekur samt alltaf pínulítið á að ferðast með börn. Á milli þess sem við hittum fólk þá bara tókum við því rólega (reyndar ekki mikið að þannig tíma) og Hrafnkell fór í heimsókn á leikskólann alveg þrisvar held ég. Ég fór í útskrift 10.bekkjar í Hagaskóla sem er alltaf svo hátíðlegt tilefni og hitti ég þar samstarfsfólkið mitt kæra. Allir uppteknir í vinnu og slíkt og eða á leið til útlanda. En gott að fá að knúsa fólk smá. Gott að koma og líka ofboðslega gott að koma aftur í okkar kot og að sjálfsögðu til Bjarkans sem verður pínku ringlaður án okkar ;)
Og talandi um leikskóla. Hrafnkell Númi fór einmitt í fyrsta sinn í morgun á nýja leikskólann sinn, Varatun barnehagen. Ég var hjá honum og á morgun verður hann lengur og þá einn. Mikið rosalega er hann tilbúinn að byrja aftur á leikskóla. Ferlega lukkulegur en pínku spenntur/trekktur á leiðinni í morgun. Við þurfum að labba smá spöl og ég mundi ekki alveg réttu og góðu leiðina þannig að leiðin í morgun og heim var aðeins lengri ;)
Annars er nú fátt brjálæðislegt nýtt að frétta-við höldum áfram að hafa það notalega. Veðrið er milt og gott-alltaf skal maður minnast á veðrið! Nú ætlar húsmóðirin að fara að stúdera norskuna meira, eigum gott efni til að styðjast við enda er það deginum ljósara að ég er/verð ekki eins fljót og snillingurinn Bjarki að ná þessu. Hann er með svo flott norsku að ég næstum roðna þegar ég hlusta á hann tala-mjög stolt af honum!
Ha det bra!
Mjög hugsi að labba í leikskólann í fyrsta skiptið

No comments:
Post a Comment