Wednesday, May 23, 2012

Sú gula og fleira

Húsbandið byrjar að vinna klukkan 7 og er því farinn út um hálf. Hér tísti einhver  óður? hræddur? snarbilaður? fugl hratt og reglulega og truflaði það minn morgunlúr. Gamla fór því framúr en stóðið sefur enn. Aldís Mjöll kom í gær og valdi líka þennan fallega dag. Strax um morguninn var kominn 25 stiga hiti sem svo hækkaði bara. Við tjölduðum því öllu-bókstaflega-og áttum frábæran dag öll saman sem svo endaði með júróvísjón sem var ekki eins frábært. Það er nú ekki eins og við höfum ekki verið í útlöndum áður á sólardegi en þetta kom svo skemmtilega aftan að okkur. Allt í einu small sumarið á okkur og við ekki bara strippuðum og bárum á okkur háan factor, heldur hentum við sundlauginni út í garð sem HN var ekki lítið ánægður með. Grilluðum svo borgara með íslenskum eðal gráðaost og tróðum í okkur. 
Við Aldís erum strax farnar að ræða hennar næstu ferð hingað :)


Kolbeinn Bói sefur eitthvað minna núna, stækkar svo hratt að maður rétt nær að geispa og snúa sér við og hann er búinn að taka stökk. Yndispersóna en alveg með skap eins og eldri. Mikill munur á þeim bræðrum þessa fyrstu mánuði sína þar sem sá eldri grét nánast stanslaust fyrstu 9 mánuðina og svo lítið sem ekkert en þessi sefur þó betur og tekur bara svoan pirringsköst og þá sjaldnar en áður þannig séð. Er svangur án þess að drekka og þreyttur án þess að kannski geta sofið meir en brosir bara og spjallar inn á milli.
Annars er sá eldri svo mikið bjútí, aðeins of klár fyrir sig eða eins og amma Hildur sagði einhvern tíma að hann vissi miklu meira en við hin. Það er dottinn smá hrakfallabálkur í kauða og sportar hann ekki bara marglitum hring í kringum auga, skurði við gagnauga, mari á handlegg (plús skrilljón öðrum marblettum) heldur náði hann að rispa á sér hnúana og vörina í gær og lítur núna út eins og lítill beyglaður breskur boxari! Ofboðslega getur hann verið erfiður á úlfatíma dagsins en mikið svakalega er hann eiginlega alltaf skemmtilegur og lætur mann flissa og hlæja án þess svo innilega að ætla sér það stundum. He´s going places þessi sko!


Læt fylgja með myndir-þær segja mun meira en þetta dagbókaþvaður mitt (sem mér á samt eftir að finnast svo skemmtilegt að lesa sjálfri síðar).
 Sundlaugin komin upp enda steik

 Frændsystkini í lest

Sunday, May 13, 2012

Við héldum að sumarið væri komið þar síðustu helgi en svo bara varð veðrið aftur skrítið. Skrítið af því að það er búið að vera voðalega íslenskt í nokkra daga, rok og rigning á köflum. Sú gula treður sér oft fram og þá er bjart og fínt. Í gær var einmitt svona íslenskur "sumardagur" en við hittum vini og fórum í eins konar húsdýra-skemmtigarð hérna rétt hjá. Ca. 15 mín að labba fyrir okkur sem kom okkur skemmtilega á óvart. Somagard heitir staðurinn og er sennilega partur af býli en það er einmitt stutt í "sveitina" eins og við segjum. Mykjufýlan fyllir oft vit okkar sem okkur finnst stundum bara svolítið vinalegt ;)
Í þessum garði eru allskonar leiktæki fyrir börnin og sem sagt dýr líka og stóru svæði. Mjög fínt og skemmtilegt að eyða þarna eftirmiðdeginum. Sé þetta alveg sem príma stað í sumar enda allt til alls; skýli ef rignir, inni-setustofa, lítil veitingasala, útigrill, bekkir og borð. Nóg af grasplássi og gleði. Svo fórum við í pizzuveislu og gamanið hélt áfram. Allir sól-veðurbarðir eftir daginn en umfram allt sælir með sæluna sætu.

Skoða bílaauglýsingar á netinu og læt mig dreyma. Langar svo að fara að keyra hérna um fylkið. Bíllinn er leyfilegur lúxus sem ég bara verð að fá! Jæja, það er sunnudagur og á sunnudögum bakar maður bakkelsi fyrir fjölskylduna. Vertu velkomin í kaffi hvenær sem er :)




Tuesday, May 8, 2012

Norðmenn halda upp á þjóðhátíðardaginn sinn 17.maí og það er angt síðan að ég sá fyrst auglýsingar á þjóðbúningum/festdrakter fyrir börn sem er í sjálfu sér allt í góðu ef það væri ekki fyrir þessa skó sem fylgja. Þvílíkt og annað eins...


Þann daginn eru þeir víst tertuóðir (sem og aðra?) og þar sem ég er svo mikið fyrir heavy hefðir (grín) þá ákvað ég að gera smá tilraun og bakaði eina hnallþóru sem ber nafnið Kvæfjordkake eða Verdens beste. Hún er svona nokkurs konar svampbotn bakaður með marengs með rommkremi á milli (og eitthvað fleira sem ég bætti við hana). Ágætis kaka og eins gott að við fjölskyldan tókum  tæplega þriggja tíma göngu áður, því hún er bomba. Nú, það að hún eigi að vera besta kakan í heiminum...well. Mér finnst brúðkaupskakan sem mamma gerir t.d. mun betri. Reyndar er ég ekkert mikið fyrir svona ríkar rjómatertur en það er bara samt eitthvað svo góð tilfinning að leggja svona ferlíki á borð... 


"Verdens beste kake"

Sólhlífin er komin í hús sem og sólarvörnin og húsbandið ætlar að versla garðhúsgögn á næstu dögum. Reyndar var mjög íslenskt veður í dag, rigning á ská og rok og engin þörf á kremi né hlíf en eins og sólardagarnir hafa verið er meira en lítil þörf á þessu öllu því bakgarðurinn er afar veðursæll (segir maður svoleiðis) og best að vera við öllu viðbúinn.