Wednesday, June 20, 2012

Hrafnkeli Núma gengur vel á leikskólanum. Við fórum í smá viðtal þar í gær og þar var að sjálfsögðu bara talað á norsku. Mamman skildi allt en fannst ferlega erfitt að geta ekki tjáð sig betur á norskunni. Þrjóskan skal hjálpa mér að ná henni! En já, honum líður greinilega vel í félagsskap barna á ný. Sú sem er yfir deildinni sagði hann bara flottan strák sem er glaður og færi vel eftir fyrirmælum. Hann flakkar á milli krakkanna og er ekki tilbaka. Mjög gott að heyra þar sem hann er ansi félagslyndur þessi elska og síðustu mánuðir hafa verið honum á stundum pínku strembnir.
Við erum ánægð með fyrstu kynni okkar af leikskólanum, mjög líkt með þeim og íslensku en samt sér maður hvað við höfum það gott á Íslandi eða hvað? Kannski er of mikið lagt upp úr því að hafa allt það flottasta og allt spikk and span á meðan starfið líður fyrir það? Segi svona, en þetta er svo sannarlega leikskóli margbreytileikans og koma til að mynda börnin beint og óbeint, alls staðar frá í heiminum. Bara skemmtilegt. Þetta er góð 25 mínútna ganga aðra leiðina á morgnana sem er fínt en við erum samt á biðlista á leikskóla hérna nær. Sjáum til með það.

Kolbeinn Bói dafnar svo sannarlega vel. Er bara næstum alltaf voða glaður og ljúfur en lætur mann vita ef hann er svangur eða þreyttur. Draumabarn! Mikið sem þetta breytist og manni finnst lífið soldið annað þegar unginn er svona glaðari :) Hann er farinn að fá að borða og þessi gaur ELSKAR að borða! Allt annað en bróðir hans, en Kolbeinn Bói er matargat sem skemmtilegt er að gefa að borða-enn sem komið er hohohoho.
Hann sefur reyndar skringilega og hefur stytt svefninn mikið og sefur núna sjaldan lengur í 2 tíma í senn. EN við sjáum til, kannski er þetta og bara sennilega, eitthvað tímabil.

Annars höfum við það fínt-skrýtið að vera ein heima með litla kút á daginn en viðurkenni að það er alveg ljúft að fá að upplifa svona "alvöru" fæðingarorlof. Við fáum svo bíl lánaðan í næstu viku í heilan mánuð og ætlum aðeins að skoða þá nær-umhverfið. Hlakka til! Bjarki ferðast mikið á daginn vegna vinnunnar og hefur fengið að sjá mikið á síðustu vikum, þannig að það verður frábært að fá tilfinninguna meira fyrir fylkinu en ég hef núna.
Myndirnar að neðan voru teknar allar hjá skóla sem heitir Soma skole en þetta er gamall skóli sem nú hefur verið sameinaður Stangeland skóla sem er töluvert langt frá. Það er alveg inn í myndinni að HN fái tilboð í þennan skóla, sennilega jafn miklir möguleikar og að hann fái tilboð í Smeaheia skóla eða Stangeland skólahlutann. Þessi er krúttlegur, eldgamall og búið að bæta við hann en samt er hann pínku og stendur á svo fínu landstæði, skógur og ójafnt leikpláss. Þess má geta að rétt hjá þarna er Soma gard sem er svona lítill (reyndar huge) húsdýra/leikgarður. Man ekki hvort ég skrifaði um heimsókn okkar þangað.


Þetta er í ca. 10 mín göngufjarlægð frá okkur.











Einn sáttur með sitt og nauðsynlegt að hafa þjónustubjöllu sér við hlið...

p.s. væri mjög til í að sjá e-r comment-það á að vera hægt án þess að þurfa að skrá sig ;) 

Thursday, June 14, 2012

Íbygginn kútur

Leiktæki fyrir ofan Smeaheia leikskóla/grunnskóla

Á leið heim framhjá Sandnes Ulf boltavellinum-að koma að Ormaskogen


 Sandnes Ulf á þetta dót

 Séð í átt að Stavanger (frá Ormaskogen)
 Séð í átt að Sola (frá Ormaskogen)
 Stígurinn sem liggur meðfram Ormaskogen-göngum hann á leiðinni í leikskólann t.d.
Rétt sést í hústoppa nokkra í Smeaheia

Séð í átt að Sola frá Ormaskogen




"inngangurinn" okkar megin að Ormaskogen

Tuesday, June 12, 2012

Við mæðginin skelltum okkur sem sagt til Íslands í viku sem var barasta fínt. Tilefnið var öllu sorglegra en ég fór til að kveðja afa minn Óla og mikið ofboðslega var gott að geta gert það. Núna sitja þau einhvers staðar saman, hann og amma og brosa í stíl. Uppáhalds uppáhöldin mín.

Nú ferðin var ágæt, ferðalagið ívið auðveldara en þetta í febrúar þegar við komum hingað út en það tekur samt alltaf pínulítið á að ferðast með börn. Á milli þess sem við hittum fólk þá bara tókum við því rólega (reyndar ekki mikið að þannig tíma) og Hrafnkell fór í heimsókn á leikskólann alveg þrisvar held ég. Ég fór í útskrift 10.bekkjar í Hagaskóla sem er alltaf svo hátíðlegt tilefni og hitti ég þar samstarfsfólkið mitt kæra. Allir uppteknir í vinnu og slíkt og eða á leið til útlanda. En gott að fá að knúsa fólk smá. Gott að koma og líka ofboðslega gott að koma aftur í okkar kot og að sjálfsögðu til Bjarkans sem verður pínku ringlaður án okkar ;)

Og talandi um leikskóla. Hrafnkell Númi fór einmitt í fyrsta sinn í morgun á nýja leikskólann sinn, Varatun barnehagen. Ég var hjá honum og á morgun verður hann lengur og þá einn. Mikið rosalega er hann tilbúinn að byrja aftur á leikskóla. Ferlega lukkulegur en pínku spenntur/trekktur á leiðinni í morgun. Við þurfum að labba smá spöl og ég mundi ekki alveg réttu og góðu leiðina þannig að leiðin í morgun og heim var aðeins lengri ;)

Annars er nú fátt brjálæðislegt nýtt að frétta-við höldum áfram að hafa það notalega. Veðrið er milt og gott-alltaf skal maður minnast á veðrið! Nú ætlar húsmóðirin að fara að stúdera norskuna meira, eigum gott efni til að styðjast við enda er það deginum ljósara að ég er/verð ekki eins fljót og snillingurinn Bjarki að ná þessu. Hann er með svo flott norsku að ég næstum roðna þegar ég hlusta á hann tala-mjög stolt af honum!

Ha det bra!
Mjög hugsi að labba í leikskólann í fyrsta skiptið