Thursday, January 10, 2013

Og svo eru bara jólin búin, við búin að fara til Íslands og komin aftur til Noregs. Þessi færsla verður án efa stefnulaus á kafla en það er allt í lagi. Hugsaði hana einna helst til að uppfæra og setja inn upplýsingar um grísina tvo.

Haustið já, kom og leið með öllum sínum fallegum litum og veðrabreytingum. Einhvers staðar er ég með það skráð en Kolbeinn Bói tók sín fyrstu skref ca. í enda nóv og þá meira svona á hlið. EN hann var fljótur að ná þessu og farinn að labba bara þegar við fórum til Íslands. Núna er ég akkúrat að horfa á krúttrassinn hlaupa létt um stofuna þannig að þetta gerist hratt og örugglega hjá mínum. Tennurnar komu seint og einnig er ég með það skráð hvenær sú fyrsta kom en svo komu þær hver á fætur annarri og er hann núna með 4 tennur, 2 uppi og 2 niðri. Mikið sem barnið breytist í framan við þetta nýja stell!

Annars er hann ljúflingur inn að beini. Elskar að borða. Allt. Verður pirraður þegar hann er svangur og þreyttur, eins og gengur og gerist en er þess á milli bara ljúfur og brosir mikið. Hamingjusamur út í gegn en varð pínku mannafæla þegar við fórum til Íslands. Kannski ekki skrýtið en hann verður nú að venjast fólki í kringum sig. Ekkert að frétta af leikskólamálum og ég er í rauninni ekkert að gera mér neinar vonir pláss á næstunni. Ég er farin að vinna þriðju hverju helgi og ég bara tek aukavaktir þangað til barnið kemst í dagpláss ;)

Hrafnkell Númi byrjaði á Smeaheia leikskóla í byrjun desember. Við vorum ekki viss um að breyting væri góð eða rétt því hann hefur jú farið í gegnum ýmsar breytingar á árinu en svo ákváðum við að slá til. Margar ástæður og meðal annars vegna þess að hann fer í Smeaheia skóla næsta vetur sem er á sömu lóð og þessi leikskóli. Svo er þetta miklu miklu nær heimilinu en hinn var langt í burtu. Fullt gott sem var á hinum og við kvöddum með söknuði en erum ofsalega ánægð með þennan leikskóla og það var tekið alveg frábærlega vel á móti okkur. Hann er alsæll, fór með nýjan hitabrúsa í dag því þau fara alltaf í ferðir og þá er sport að fá að taka heitt kakó með sér. Hann er svo duglegur og svo góður við brósa sinn. Nú sofa þeir saman í herbergi og vakna saman á morgnana og spjalla í dágóða stund á meðan mamman fær að snúsa smá. Ekkert nema krúttlegt að hlusta á þá. Kolbeinn er nú ekki farinn að segja nein orð en segir oft og mikið nei nei nei. Algjört rassgat!

Kolbeinn Bói var formlega skírður á Íslandi í faðmi góðra vina og fjölskyldu. Það var voða gaman að ná svona mörgum saman því keyrslan á Íslandi í svona "frí"ferðlagi er mikil og maður nær ekki að hitta alla. Þess utan vorum við að ganga frá íbúðinni á Dunhaga, ganga frá geymslu, selja og þess háttar skemmtilegheit. Sjæse!

Hversdagsleikinn er tekinn við og rútínan sem er fín. Hittum vini um helgina og svo förum við í hyttu þar næstu helgi sem verður eitthvað því hún er svakalega fín og á frábærum stað. Er s.s. kölluð Útsýnið og ekki að ástæðulausu. Hlökkum til :)

Bíllinn er okkar himnasending-well ekkert endilega send að ofan en við elskum að eiga bíl og lífið varð bara auðveldara. Það er bara þannig.

Man ekki meira í bili-kemur ábyggilega og þá bara hendi ég því inn.

Knús frá Lupinveien :*