Wednesday, April 17, 2013

Góðir hlutir...

Til að skjalfesta nokkra hluti strax, þá vil ég merkja það að Kolbeinn Bói er kominn með fimmtu tönnina (ekki alveg komin niður) og  það vinstra megin við framtennur og ég held barasta að hin, sú hægra megin, fari að troða sér niður. Af öðrum tannamálum, þá hefur eldra eintakið beðið eftir að eitthvað úr barnastellinu fari að losna og svo í fyrrakvöld við tannburstun sá ég glitta ég smá fullorðins-brodd á bak við eina pínku lausa í neðri góm. Enginn hafði tekið eftir þessu og jii hvað við urðum spennt yfir þessu! Nú, Kolbeinn Bói stækkar, þroskast og dafnar sem aldrei fyrr og þetta ánægða barn kemur mér sífellt á óvart. Hann skilur svo mikið allt í einu og er farinn að segja nei við því sem hann vill ekki og svo já (kinka kolli) við því sem hann vill. Borða ofboðslega vel, sefur frábærlega og já, er bara veldig fornøyd. Notar mamma svona annars slagið og svo einhver önnur afbökuð orð en það kemur svo sannarlega ekki í veg fyrir að drengurinn spjalli daginn út og inn! Svo elskar hann tónlist og það liggur við að það megi ekki humma eða tala of hratt, ogcþá er drengurinn farinn að dilla sér. Þeir bræður hafa mikið dálæti á hvorum öðrum sem er svo dýrmætt og hlýtt, ekkert vesen með þessa gaura :)

Vorið er svo sannarlega komið, rigndi í fyrsta skipti í fjöldamargar vikur á sunnudaginn og ó hvað það var bara notalegt enda áttum við fjölskyldan inni-afslöppunardag á meðan vindur og regn slógust hér fyrir utan. Hitastigið hefur líka stigið jafnt og þétt, ekkert að þjóta upp en munur frá mínugráðunum sem hafa herjað-og menn ekki munað annað eins. Milt og fallegt veður engu að síður, en kalt og rakt. Erum tilbúin í vorið og svo sumarið allavega :)

Eftir að ég skrifaði síðustu færsluna, að ég held einungis 3 dögum síðar, fengum við tilkynningu þess efnis að Kolbeinn Bói hefði komist inn á Smeaheia leikskóla. Léttirinn og ánægjan á einu heimili en nú verða þeir bræður hlið við hlið og mun nær heimilinu en hinn leikskólinn.

Mamman fékk tilboð um næturvakta-afleysingastöðu sem hún bara hreinlega gat ekki neitað. Vinn því 53%, 3 vaktir í röð og svo frí í 7-8 daga. Afar fínt og þá sérstaklega að geta verið heima síðar með strákunum á daginn ef eitthvað kemur upp á og aldrei farin að vinna fyrr en þeir eru löngu sofnaðir. Tekur reyndar örlítið á núna þegar Kolbeinn er ekki byrjaður á leikskóla, en þá kem ég heim og leysi ég Bjarka af sem fer í vinnu og svo bara held ég mér vakandi þar til hann kemur úr vinnu og svo koll af kolli. Þetta verður allt annað þegar leikskólinn byrjar svo maður bara þraukar...

Annars gengur lífið sinn vanagang ef hægt er að segja svo, erum að fara að prófa íslenska barnapíu bráðlega og fáum þá kannski að skreppa út hjónin af og til. Sumarið er handan hornsins og útilegur, útlandaferðir, strandferðir, garð-busl, heimsóknir og annað skemmtilegt er á dagskránni. Komdu!

 EInn spenntur rétt áður en gestirnir komu
Allt á fullu í leik



Pakka/flöskustútsleikurinn


Hver einasta arða kláruð...

Fann þetta uppkast frá því í mars...hendi því inn á undan næstu færslu :)

Já tja, hvað er að frétta??!! Sitthvað skal ég ykkur segja en svo þegar maður sest loksins fyrir framan skjáinn og takkaborðið þá er eins og heilinn breytist í gufuskip og sigli bara burt!

En skal reyna, við Kolbeinn Bói erum enn bara heimavið og höfum það notalegt í daglegu hangsi og dúlleríi. Hann er náttúrulega svo mikil yndisblúnda, ferlega sáttur með lífið og tilveruna og voða glaður gaur. Borðar endalaust og dundar sér inn á milli. "Spjallar" um heima og geima og það sem ég myndi vilja gefa til að fá þýðingu á þessum innihaldsríku og oft kappsfullu samræðum hans. erum eld ég svolítið á því að hann sé meiri tætir en Hrafnkell var en kannski bara misminnir okkur ;) Í enda ágúst ca. byrjar hann á leikskóla, á þeim sama og Hrafnkell Númi byrjaði á fyrst og því ekki okkar 1.-3. val eða hérna í okkar hverfi. Erum ánægð að hann sé kominn með pláss en værum svo innilega til í að honum yrði ekki hrúgað með restinni af börnum sem eru ekki með norsku sem móðurmál á sama stað...ekki meir um það en erum voðalega ánægð með leikskólann hans Hrafnkels Núma og hann sömuleiðis. Alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi eins og uppsetningin um daginn sem þau hafa verið að æfa síðan eftir áramót. Á ekki nógu mörg falleg né sterk orð til að lýsa þeirri upplifun okkar en já ferlega skemmtilegt allt. Honum gengur bara vel og ég heyrði hann tala smá á norsku við sjálfan sig í morgun. Hann æfir fótboltann enn og finnst voða gaman þó það þurfi stundum að minna hann á að þetta sé fótbolti, það sé leikur í gangi en ekki dansæfing ;)

Í haust byrjar hann í skólanum sem er svo óraunverulegt en gerist víst, þ.e. þau stækka og geta ekkert endalaust verið í leikskóla. En já, þeir bræður verða í góðum málum í haust og mamman heima á daginn eins og góðri húsmóður sæmir (djók). Nei nei, ég fékk tilboð um aðra stöðu sem felur í sér einungis næturvaktir sem verður fínt-3 nætur og svo um vika í frí og svo koll af kolli. Prófa þetta en þetta er svona já þar sem heilsubakgrunnur minn kemur inn og fínt að spreyta sig á nýjum hlutum. Fínt að vera heima þegar veikindi og svoleiðis ber að garði...

Svo erum við í sumarpælingum, spæla hvert við eigum að fara í stutt frí og endum sennilega á London. Útilegurnar verða vonandi margar og svo erum við náttúrulega að fara til Sunnu og Haffa sem búa í hokksund sem  er rétt við Drammen. Ætlum að keyra á miðvikudaginn næsta í einnu bunu og kíkja svo kannski á Osló á laugardeginum. Verður ferlega skemmtilegt án efa!


Thursday, January 10, 2013

Og svo eru bara jólin búin, við búin að fara til Íslands og komin aftur til Noregs. Þessi færsla verður án efa stefnulaus á kafla en það er allt í lagi. Hugsaði hana einna helst til að uppfæra og setja inn upplýsingar um grísina tvo.

Haustið já, kom og leið með öllum sínum fallegum litum og veðrabreytingum. Einhvers staðar er ég með það skráð en Kolbeinn Bói tók sín fyrstu skref ca. í enda nóv og þá meira svona á hlið. EN hann var fljótur að ná þessu og farinn að labba bara þegar við fórum til Íslands. Núna er ég akkúrat að horfa á krúttrassinn hlaupa létt um stofuna þannig að þetta gerist hratt og örugglega hjá mínum. Tennurnar komu seint og einnig er ég með það skráð hvenær sú fyrsta kom en svo komu þær hver á fætur annarri og er hann núna með 4 tennur, 2 uppi og 2 niðri. Mikið sem barnið breytist í framan við þetta nýja stell!

Annars er hann ljúflingur inn að beini. Elskar að borða. Allt. Verður pirraður þegar hann er svangur og þreyttur, eins og gengur og gerist en er þess á milli bara ljúfur og brosir mikið. Hamingjusamur út í gegn en varð pínku mannafæla þegar við fórum til Íslands. Kannski ekki skrýtið en hann verður nú að venjast fólki í kringum sig. Ekkert að frétta af leikskólamálum og ég er í rauninni ekkert að gera mér neinar vonir pláss á næstunni. Ég er farin að vinna þriðju hverju helgi og ég bara tek aukavaktir þangað til barnið kemst í dagpláss ;)

Hrafnkell Númi byrjaði á Smeaheia leikskóla í byrjun desember. Við vorum ekki viss um að breyting væri góð eða rétt því hann hefur jú farið í gegnum ýmsar breytingar á árinu en svo ákváðum við að slá til. Margar ástæður og meðal annars vegna þess að hann fer í Smeaheia skóla næsta vetur sem er á sömu lóð og þessi leikskóli. Svo er þetta miklu miklu nær heimilinu en hinn var langt í burtu. Fullt gott sem var á hinum og við kvöddum með söknuði en erum ofsalega ánægð með þennan leikskóla og það var tekið alveg frábærlega vel á móti okkur. Hann er alsæll, fór með nýjan hitabrúsa í dag því þau fara alltaf í ferðir og þá er sport að fá að taka heitt kakó með sér. Hann er svo duglegur og svo góður við brósa sinn. Nú sofa þeir saman í herbergi og vakna saman á morgnana og spjalla í dágóða stund á meðan mamman fær að snúsa smá. Ekkert nema krúttlegt að hlusta á þá. Kolbeinn er nú ekki farinn að segja nein orð en segir oft og mikið nei nei nei. Algjört rassgat!

Kolbeinn Bói var formlega skírður á Íslandi í faðmi góðra vina og fjölskyldu. Það var voða gaman að ná svona mörgum saman því keyrslan á Íslandi í svona "frí"ferðlagi er mikil og maður nær ekki að hitta alla. Þess utan vorum við að ganga frá íbúðinni á Dunhaga, ganga frá geymslu, selja og þess háttar skemmtilegheit. Sjæse!

Hversdagsleikinn er tekinn við og rútínan sem er fín. Hittum vini um helgina og svo förum við í hyttu þar næstu helgi sem verður eitthvað því hún er svakalega fín og á frábærum stað. Er s.s. kölluð Útsýnið og ekki að ástæðulausu. Hlökkum til :)

Bíllinn er okkar himnasending-well ekkert endilega send að ofan en við elskum að eiga bíl og lífið varð bara auðveldara. Það er bara þannig.

Man ekki meira í bili-kemur ábyggilega og þá bara hendi ég því inn.

Knús frá Lupinveien :*