Já tja, hvað er að frétta??!! Sitthvað skal ég ykkur segja en svo þegar maður sest loksins fyrir framan skjáinn og takkaborðið þá er eins og heilinn breytist í gufuskip og sigli bara burt!
En skal reyna, við Kolbeinn Bói erum enn bara heimavið og höfum það notalegt í daglegu hangsi og dúlleríi. Hann er náttúrulega svo mikil yndisblúnda, ferlega sáttur með lífið og tilveruna og voða glaður gaur. Borðar endalaust og dundar sér inn á milli. "Spjallar" um heima og geima og það sem ég myndi vilja gefa til að fá þýðingu á þessum innihaldsríku og oft kappsfullu samræðum hans. erum eld ég svolítið á því að hann sé meiri tætir en Hrafnkell var en kannski bara misminnir okkur ;) Í enda ágúst ca. byrjar hann á leikskóla, á þeim sama og Hrafnkell Númi byrjaði á fyrst og því ekki okkar 1.-3. val eða hérna í okkar hverfi. Erum ánægð að hann sé kominn með pláss en værum svo innilega til í að honum yrði ekki hrúgað með restinni af börnum sem eru ekki með norsku sem móðurmál á sama stað...ekki meir um það en erum voðalega ánægð með leikskólann hans Hrafnkels Núma og hann sömuleiðis. Alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi eins og uppsetningin um daginn sem þau hafa verið að æfa síðan eftir áramót. Á ekki nógu mörg falleg né sterk orð til að lýsa þeirri upplifun okkar en já ferlega skemmtilegt allt. Honum gengur bara vel og ég heyrði hann tala smá á norsku við sjálfan sig í morgun. Hann æfir fótboltann enn og finnst voða gaman þó það þurfi stundum að minna hann á að þetta sé fótbolti, það sé leikur í gangi en ekki dansæfing ;)
Í haust byrjar hann í skólanum sem er svo óraunverulegt en gerist víst, þ.e. þau stækka og geta ekkert endalaust verið í leikskóla. En já, þeir bræður verða í góðum málum í haust og mamman heima á daginn eins og góðri húsmóður sæmir (djók). Nei nei, ég fékk tilboð um aðra stöðu sem felur í sér einungis næturvaktir sem verður fínt-3 nætur og svo um vika í frí og svo koll af kolli. Prófa þetta en þetta er svona já þar sem heilsubakgrunnur minn kemur inn og fínt að spreyta sig á nýjum hlutum. Fínt að vera heima þegar veikindi og svoleiðis ber að garði...
Svo erum við í sumarpælingum, spæla hvert við eigum að fara í stutt frí og endum sennilega á London. Útilegurnar verða vonandi margar og svo erum við náttúrulega að fara til Sunnu og Haffa sem búa í hokksund sem er rétt við Drammen. Ætlum að keyra á miðvikudaginn næsta í einnu bunu og kíkja svo kannski á Osló á laugardeginum. Verður ferlega skemmtilegt án efa!
No comments:
Post a Comment