Monday, July 9, 2012

Fyrsta norska "útilegan"

Ákváðum að leita á netinu og reyna að komast í burtu yfir helgina í bústað/hyttu. Bjarki er ekki í sumarfríi og þar sem við erum með bíl að láni þá var alveg tilvalið að tjékka aðeins á nærumhverfinu. Þar sem Norðmenn eru allir í fyrirhyggjunni þá var ekki mikið laust nema í Grindafjord ferisenter sem við og tókum. Næst minnsta hyttan með engu wc en vaski. Pottþétt! Við bjuggumst ekki við neinu og svo bara sátt við komuna, allt hreint þó kofinn sjálfur sé eldri en við öll til samans. Spartan smá en sætt líka. En öllu haldið við og á ágætis svæði. Þarna eru líka endalaust mörg hjólhýsi sem búið er að byggja við og palla og annað í kring. Allir voða sáttir með sitt og eftir að hafa verið þarna smá stund, þá einmitt föttuðum við galdurinn og muninn smá á okkur og Norðmönnum...þeir einmitt margir hverjir láta sér nægja þetta litla pláss sem hjólhýsið er og gera bara gott úr því en eru ekkert að byggja 200 fermetra sumarhallir eins og...sumir ;) Svo bara kemur fólk þarna yfir sumarið og hefur það notalegt. En eins og við gerðum er líka hægt að leigja svona kofa í mismunandi stærðum, koma með tjaldið sitt eða renna í gegn á húsbílnum. Sér svæði fyrir allt og góð aðstaða fyrir alla.

Þarna var svona saltvatnslaug, trampólín og önnur leiktæki og svo er þetta í skógi og við fjörð. Lítil krá og veitingastaður, sjoppa og annað tilheyrandi. Ekki of stórt eða of mikið af fólki. Fallegt bara og fannst okkur þetta voðalega sniðug hugmynd hjá okkur að láta vaða. Á laugardeginum fórum við eldsnemma í Haugasund-síldarhöfuðstað Norðmanna hérna í den (held ég) og já gengum þar um og pældum í öllu.

Í gær á heimleiðinni stoppuðum við í Klösteröy sem er hérna rétt fyrir ofan Stavanger, og borðuðum nesti í blíðunni. Mjög fallegt þarna. Annars finnst okkur ótrúlega fallegt hérna, landslagið svo víðbreytt og mismunandi (sko bjó til nýtt orð og þú fattaðir það ekki). Gott að geta kannað það sem liggur fyrir utan Sandnesið okkar aðeins og svo lætur maður sig dreyma í leiðinni. Aðallega um bíl þessa stundina hoho.

Læt fylgja nokkrar myndir, þær segja miklu betur frá en nokkurn tíma ég.

Lítið en virkar

 Saltvatnsútilaugin
Trampó fyrir unga sem aldna

Róló og minigolf-basic

Þjónustuhúsið (krá og matur og fl.)

HN vildi eina af sér í efri koju sem var sport

Næstum hægt að teygja sig í 300 ára gamla ísskápinn úr rúminu


Norðmenn ekki hræddir við að flagga mikið (Haugesund)

Gamla sláturhúsið. Þarna var ábyggilega drepið.

 Vel litlaýkt mynd af Kolbeinssíld




Þetta andlit



 Útsýni við Utstein klaustrið í Kløsterøy

 Klaustrið/kirkjan


Opið hús