Við erum ánægð með fyrstu kynni okkar af leikskólanum, mjög líkt með þeim og íslensku en samt sér maður hvað við höfum það gott á Íslandi eða hvað? Kannski er of mikið lagt upp úr því að hafa allt það flottasta og allt spikk and span á meðan starfið líður fyrir það? Segi svona, en þetta er svo sannarlega leikskóli margbreytileikans og koma til að mynda börnin beint og óbeint, alls staðar frá í heiminum. Bara skemmtilegt. Þetta er góð 25 mínútna ganga aðra leiðina á morgnana sem er fínt en við erum samt á biðlista á leikskóla hérna nær. Sjáum til með það.
Kolbeinn Bói dafnar svo sannarlega vel. Er bara næstum alltaf voða glaður og ljúfur en lætur mann vita ef hann er svangur eða þreyttur. Draumabarn! Mikið sem þetta breytist og manni finnst lífið soldið annað þegar unginn er svona glaðari :) Hann er farinn að fá að borða og þessi gaur ELSKAR að borða! Allt annað en bróðir hans, en Kolbeinn Bói er matargat sem skemmtilegt er að gefa að borða-enn sem komið er hohohoho.
Hann sefur reyndar skringilega og hefur stytt svefninn mikið og sefur núna sjaldan lengur í 2 tíma í senn. EN við sjáum til, kannski er þetta og bara sennilega, eitthvað tímabil.
Annars höfum við það fínt-skrýtið að vera ein heima með litla kút á daginn en viðurkenni að það er alveg ljúft að fá að upplifa svona "alvöru" fæðingarorlof. Við fáum svo bíl lánaðan í næstu viku í heilan mánuð og ætlum aðeins að skoða þá nær-umhverfið. Hlakka til! Bjarki ferðast mikið á daginn vegna vinnunnar og hefur fengið að sjá mikið á síðustu vikum, þannig að það verður frábært að fá tilfinninguna meira fyrir fylkinu en ég hef núna.
Myndirnar að neðan voru teknar allar hjá skóla sem heitir Soma skole en þetta er gamall skóli sem nú hefur verið sameinaður Stangeland skóla sem er töluvert langt frá. Það er alveg inn í myndinni að HN fái tilboð í þennan skóla, sennilega jafn miklir möguleikar og að hann fái tilboð í Smeaheia skóla eða Stangeland skólahlutann. Þessi er krúttlegur, eldgamall og búið að bæta við hann en samt er hann pínku og stendur á svo fínu landstæði, skógur og ójafnt leikpláss. Þess má geta að rétt hjá þarna er Soma gard sem er svona lítill (reyndar huge) húsdýra/leikgarður. Man ekki hvort ég skrifaði um heimsókn okkar þangað.
Þetta er í ca. 10 mín göngufjarlægð frá okkur.
Einn sáttur með sitt og nauðsynlegt að hafa þjónustubjöllu sér við hlið...
p.s. væri mjög til í að sjá e-r comment-það á að vera hægt án þess að þurfa að skrá sig ;)
Hahaha flottur með bjölluna!! Hlakka til að hitta ykkur!!
ReplyDelete