Þann daginn eru þeir víst tertuóðir (sem og aðra?) og þar sem ég er svo mikið fyrir heavy hefðir (grín) þá ákvað ég að gera smá tilraun og bakaði eina hnallþóru sem ber nafnið Kvæfjordkake eða Verdens beste. Hún er svona nokkurs konar svampbotn bakaður með marengs með rommkremi á milli (og eitthvað fleira sem ég bætti við hana). Ágætis kaka og eins gott að við fjölskyldan tókum tæplega þriggja tíma göngu áður, því hún er bomba. Nú, það að hún eigi að vera besta kakan í heiminum...well. Mér finnst brúðkaupskakan sem mamma gerir t.d. mun betri. Reyndar er ég ekkert mikið fyrir svona ríkar rjómatertur en það er bara samt eitthvað svo góð tilfinning að leggja svona ferlíki á borð...
"Verdens beste kake"
No comments:
Post a Comment