1. júní byrjar ofur-hrúturinn í leikskóla. Við fengum ekki pláss á þeim leikskólum sem við sóttum um númer 1,2 eða 3 (þetta var s.s. 4.val) en án efa er þetta flottur leikskóli. Hann er smá labb í burtu og það er það sem setti hann í 4.sætið. En allavega, hann fékk þar pláss og þar er svona móttökuáætlun og börn af margbreytilegum bakgrunnum þannig að þau kunna þetta þarna ;) Litla steingeitin AKA hrukkan AKA krumpan (önnur saga), er kominn á biðlista fyrir pláss en miðað við hvað við þurftum að bíða lengi eftir plássi fyrir eldra dýrið, þá bind ég engar vonir við að hann komist fyrr en seint á næsta ári...sjáum til.
Annars hafa drengirnir það fínt. Auðvitað finnst þeim eldri stundum erfitt að vera heima allan daginn með múttu og litlakrump, en mikið óskaplega hefur hann komið okkur samt á óvart. Er búinn að vera svo duglegur og er virkilega sáttur þó hann hafi ekki stíft prógram á daginn. Á móti kemur reyndar að hann gleypir pabba sinn þegar hann kemur úr vinnu en það er eðilegt. Hann getur samt ekki beðið eftir að kynnast krökkum á leikskólanum. Þá verðum við litli bara heima saman sem verður líka fínt. Já já...
Ég er sem sagt að vinna í því að senda út pappírana mína til að verða lögleg sem þroskaþjálfi hérna úti. Svo þarf að fá samþykkta sérkennslupappíra og annað. Mér er sagt að þetta geti tekið nokkra mánuði. Það er svolítið málið hérna úti, það tekur allt óendanlegan tíma miðað við heima. En það kemur ekki að sök, maður bara hugsar um eitthvað annað í stað þessa að fussa og sveia-það gerir manni ekkert gott. Hver veit nema ég fari svo bara að sækja um vinnu. Bjarki byrjaði í nýrri vinnu fyrir 2 vikum og er svona sáttur með lífið! Er að skoða að klára bara það litla sem hann á eftir í rafvirkjanum, sem er mjög lítið.
Nú veð ég úr einu í annað...allavega, húsið er svona ponsu grænt "fúnkís"raðhús í lítilli götu en hverfið er afar barnvænt og rólegt. Teljum okkur heppin af hafa fengið þetta hús, leigusalinn er voða væn kona sem vill bara að okkur líði vel og er ofsa ánægð hvað við hugsum vel um húsið. Hún kom um daginn í heimsókn með súkkulaði og orkideu til að bjóða okkur velkomin! Hér eru skrilljón rólóar og svo er Ormaskogen hérna rétt við þannig að við löbbum mikið í skóginum sem HN kallar ævintýraskógurinn. Hinum meginn við skóginn er svo Sandnes Ulf fótboltastadium og lítil sundhöll en þær eru afar fáar hérna úti þannig að staðsetningin er frábær. Við sundhöllina er Gisketjörn með öllu sínu fuglalífi og rómantískheitum. Mjög smart ;) Að labba niður í "miðbæ" Sandnes er svona 20 mín með einn gaur í vagni og annan labbandi. Þar er flest það sem bær hefur upp á bjóða, lengsta göngugata í Noregi sem geymir nokkrar fallegar búðir en það vantar kannski samt svona kjarna sem tengir bæinn saman meira. Kannski soldið eins og Reykjavík? En hér er mikil uppbygging enda orðið svo dýrt að búa í Stavanger að fólk flyst hingað. Erum voða sátt við þetta þó manni langi stundum að geta stokkið í kaffibolla á kaffíhúsi nálægt heimilinu. En þar kemur kannski bílleysið inn en ég hélt að það yrði auðveldara að vera án bíls. Það er auðvelt upp að ákveðnu marki en mér finnst ekkert rómantískt að ferðast í strætó með grátandi ungabarn og geta ekki gert neitt. Steingeitin hefur nefnilega verið pínku óvær frá fæðingu þannig að strætóferðirnar okkar hérna úti hafa margar hverjar verið ansi skrautlegar. Svo er ekkert leiðinlegra en að þurf að versla í matinn nánast á hverjum degi í stað þess að gera stórinnkaup. Nóg um það, við skoðum bílakaup á næstunni :) Svo langar mig að fara að skoða mig í kring og fylkið meira.
Erum að koma okkur ágætlega fyrir í hversdagsleikanum. Fullt nýtt en annars er margt svipað enda erum við ekkert á hinum enda hnattarins. Komst reyndar að því að þurrkaðar döðlur eru ófáanlegar, þannig að þeir sem vilja Dillonsköku þegar þeir koma í heimsókn verða að koma með Hagverspoka með sér hohoho. Bjarki er að hjálpa íslensku pari að flytja, einmitt úr Stavanger í Sandnes og svo hittum við hann á eftir. Fastir liðir eins og venjulega er laugardagspizzan en það er ævaforn hefð úr minni móðurfjölskyldu sem við höldum áfram með.
Sumarið er að lauma sér að okkur og grillið fær ábyggilega að njóta sín í nánustu framtíð, skrifa ég og hugsa um laxinn sem er inni í ísskáp... Garðurinn eða afgirti steypti pallurinn er rúmgóður og við munum án efa hanga þar mikið í sumar. Verið velkomin ;)
OMG get ekki beðið eftir því að koma!! Hljómar ekkert smá vel og ég hlakka til að fara í þennan ævintýraskóg og í sund og sjá tjörnina o.s.frv. o.s.frv...!
ReplyDeleteBið að heilsa gaurmundum!!
Love Aldís (sem er að rotna í prófuuum 3/11..... 11, JÁ ég sagði 11!!!)