Wednesday, September 26, 2012

Síðasta færsla var í júlí og það er nú aldeilis margt búið að gerast síðan þá. Ég ætla nú ekki að telja allt upp hér en má samt nefna heimsókn ömmu Láru og afa Svenna ásamt Höllu frænku í ágúst, en þau voru hjá okkur í nokkra daga sem var alger unaður. Ýmislegt brallað og afi Svenni fór vonandi vel hvíldur aftur úr landi! Við fórum í smá hyttetur og svo fórum við Bjarki með Hrafnkel Núma í Kongeparken sem er svona skemmtigarður hérna rétt hjá. Það var svoooo gaman hjá okkur og svo gaman að sjá hann upplifa þetta, ótrúlega hugrakkur og frábær. Við hlógum svo mikið og þetta var svo frábært. Förum þangað aftur næsta sumar eða eitthvað, HN óður að sýna KB öll tækin. HN óð tæki úr tæki og okkur mæðginum var einu sinni vísað frá en þá var hann ekki búinn að ná ákv. hæð (sem hann reyndar er búinn en stelpan var ekki á því). Hann þorði og vildi prófa allt og ég bara fylgdi.   Æðislegt!

Finnst ferlegt að gleyma að punkta niður þessa litlu áfanga hans Kolbeins Bóa, en í byrjun ágúst þá byrjaði hann að vera með nokkurs konar skriðtilburði en samt ekki skrið. Hann dró sig áfram á olnbogunum og svo stoppaði hann annars slagið og skellti sér upp á aðra hlið líkt og hann væri að fara að breika. Svo þegar amma og afi komu, þá var hann farinn að fara upp á hnén og rugga sér en samt ekki alveg 100% skrið ennþá. EN núna og fyrir dálitlu síðan er hann sko farinn að skríða og það örugglega. Svo byrjaði hann fyrir kannski viku eða jafnvel aðeins meira, að standa upp en er enn pínku óöruggur með það og þarf að hafa eitthvað til að ríghalda sér í eins og rimla. Í gær fór hann svo upp að sófanum þar sem stóri bróðir sat og stóð upp og sýndi einbeittan vilja til að komast upp í til hans! Honum þykir svo mikið til stóra bróður koma og verður eitt bros þegar hann sér hann eða heyrir í honum. Hrafnkell Númi er þá iðulega settur í að "passa" eða tala við Kolbein Bóa ef mamman þarf að gera eitthvað t.d. hérna í eldhúsinu. Mjög þæginlegt við þetta hús er að þetta er eilítið eins og gömlu járnbrautarhúsin í NY í den, svona langt og allt á sama stað þannig að við erum öll mest alltaf saman hérna á neðri hæðinni. Sé samt fram á að við þurfum að útvega okkur öryggishliði á stigann...og það mjög fljótlega! 

Fleira af KB, hann er ekki komin með tönn en mikil ósköp sem gómurinn angrar. Þá er frosin melóna í fæðuneti alveg það besta! Þeir bræður hafa verið mikið kvefaðir og grunar okkur eyrnabólgu hjá KB og jafnvel hjá HN. Leiðindatal en skrásetingin kannski hjálpar mér síðar ;) Þurfum að bíða svo lengi eftir tíma hjá lækni sem svo lætur okkur fá beiðni hjá HN lækni (vonandi). EN svona er þetta og þeir eru annars hressir og skemmtilegir :) KB er ekki alveg farinn að geta setið einn og óstuddur en hann nær svona að ýta sér smá upp þegar hann er á gólfinu að skríða og svo nær hann stundum að sitja smá en lekur svo niður. Svo fer hann í 9 mánaða skoðun í okt og þá koma án efa glæsilegar tölur. Já meðan ég man að skrifa það niður, ekki að það gleymist en barnið elskar mat og þá eiginlega allan mat. Avacadó og banani eru töfrablanda, sætar kartöflur, kjúklingur, lax og svo má lengi telja. Nú vinnur mamman í því að bæta við mataræðið og gera það fjölbreyttara. Engin mjólk og ætlum við að sleppa henni eins og við hin á heimilinu höfum nú gert (fyrir utan smá ost stundum).

Við höfum verið (mis)dugleg að taka myndir en ég nota daginn í dag til að setja myndir hingað inn. Maður þarf ekki að vera myndasjení til að taka góðar myndir af þessum drengjum, þeir sjáum það sjálfir að myndefnið sé eðall enda gæðagenin hér á ferð! Njótið :)

Býflugutækið sem við fórum í




Æ greyið vildi endilega prófa elsta tækið í garðinum. Við emjuðum úr hlátri, hann var einn í öllu tækinu sem hreyfðist 0! Endalaust fyndið fyrir okkur sem horfðum á.

Ætlum þangað næst að búa til súkkulaði!

Við mæðginin fórum nokkrar ferðir í þessum


...svo koma fleiri, ætla að tæma vélina

1 comment:

  1. Vei, gaman að lesa nýja færslu um lífið í Noregi. Svo duglegir og fallegir strákar sem þið eigið :-) Kveðja Dröfn.

    ReplyDelete